30.9.06

vopnin kvödd

til hamingju Ísland!

nú dugar ekkert minna en vitna í stólaxa eins og Hemingway og Sylvíu Nótt.
því í dag er hersetu Kana lokið á Íslandi. því hlýtur hver Íslendingur að fagna og var kominn tími til.

eftir sig skilja þeir á Minesheiði, eins og hvar sem herir koma, sviðna jörð. draugabæ á illbyggilegri heiði, sorphauga sem enginn veit hvaða viðbjóð hafa að geyma og yfirvofandi kakkalakkafaraldur svo eitthvað sé nefnt. hafa að vísu ekki stundað stórtæk manndráp hérlendis enda haft valdhafa í vasanum alla tíð.

meira að segja suðurnesjamenn eygja nú von um að geta byggt upp samfélag sem byggir á raunverlulegum hlutum en ekki þeirri skynvillu og gróðrarstíu spillingar sem herstöð erlends stórveldis með ótakmörkuð fjárráð óhjákvæmilega er.

farið hefur fé betra!

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Sammála, þetta er hátíðarstund og ætti hver Íslendingur að lyfta glasi og skála fyrir brottflutningnum. Altént þeir sem það geta.

20:39  
Anonymous Nafnlaus said...

Skálið þið, fátækir í anda. farið þið nú að átta ykkur á að í stað hersins, erum við komin með CIA og öll önnur njósna og fanta apparöt USA inn á skrifborð BéBé og Þaðan verður okkur stjórnað og með okkur fylgst framvegis. Sérsveitir og leynilögga, stjórnað frá Washington. Þetta er nú allur ávinningurinn!

01:10  
Anonymous Nafnlaus said...

fjandans. á nú að fara að sýra fyrir manni tilefni til að skála! shite...

14:25  

Skrifa ummæli

<< Home