útsýni til sölu!
þetta er einn vinkillinn á útsýninu af efri hæðinni á Spítalavegi 15. ekki missa af þessu einstaka tækifæri!
sést inn allan fjörð og út á Kaldbak með góðum vilja...
myndin var tekin um nótt í júní sl. og í kvæði síðan þá segir:
„Í heiðinni hafa fannirnar nú hopað fyrir sumargrænum kjól
og björgin fyrir handan eru bleik um miðja nótt af ungri sól...“
5 Comments:
Hvað kosta herlegheitin svo?
smáaura. ef þú ert að leita að orlofsíbúð er þetta málið.
Já sumt er erfitt að verðleggja eða réttara sagt gleymist gjarnan að setja inn í verðmætamatið!!
Er að prufa mig áfram með þessa tækni hehe og er gjarnan búin að ýta á hina ýmsu takka áður en ég veit af ;-) svo ég gengst við ofnagreindum anonymous blessuðum.
gleymist ekkert og er ekkert erfitt. þetta er meðvituð ákvörðun um að hunsa mikilvæg lífsgæði. skil það ekki á þessum stórkapítalísku tímum eftirsóknar eftir vindi...
Skrifa ummæli
<< Home