2.11.06

kellingar

fékk ádrepu í tölvupósti eftir svar við ályktun félaga Chriztians á síðustu færslu. verð að útskýra mál mitt örlítið nánar svo hausinn haldi áfram að hanga áfastur við búkinn:

kellingar eru skrítið fyribæri. og í þessum pistli er hugtakið notað um fólk með ákveðin einkenni óháð kyni eða kynhneigð.

fyrir svosem aldarfjórðungi eða svo skilgreindum við tveir félagar þetta hugtak upp á nýtt til að auðvelda okkur lífið.

kelling er almennt séð leiðinleg, þröngsýn manneskja sem er hvað mest í því að fylgja settum reglum um viðtekna meðalhegðun og siði auk þess að stunda svona almennt bögg á alla þá sem kjósa að gera það ekki. kellingar nöldra yfir öllu og eru yfir höfuð slakur félagsskapur. þær kvarta í Rúmfó yfir því að kertið hafi brunnið of fljótt niður. þannig lið.

það er ekki margt sem ég er hörudssár yfir – en þegar á að fara að stimpla mig sem karlrembu er það óverðskuldað. því ég þekki fleiri karlkyns kellingar en kvenkyns.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hahhahhha gaman gaman, jæja karlremban þín. Þetta var bara gaman að lesa

Ég veit alveg hvað þú ert að tala um þegar þú talar um þennan þjóðfélagshóp. Hitti eitt svona eintak í sumar sem reyndist hámenntaður listamaður sem ekki gerði neitt nema tuða skít..

19:38  

Skrifa ummæli

<< Home