13.8.07

gay pride







fylgdist á laugardaginn var með gleðigöngu samkynheigðra. frábær dagur, mikil gleði og umfram allt samstaða og einhugur. tók slatta af myndum og hér eru nokkur sýnishorn. og þótt dómkirkjan og Jón Sigurðsson snúi baki í gay pride vakti athygli að hópur presta tók þátt í göngunni. sem mér fannst ansi mögnuð yfirlýsing.

frá upphafi gay pride á Íslandi hefur veðrið leikið við göngufólk. því hefur verið haldið fram að það sé staðfestig á því að guð sé hommi.

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Eru trúmenn ekki búnir að sanna að guð er kynlaus?
Hversvegna hefði hann annars átt að senda heilagan anda á Maríu?

23:31  
Anonymous Nafnlaus said...

jú, af því að hann er hommi gat hann ekki hugsað sér að vera neitt að fikta í henni!

14:10  
Anonymous Nafnlaus said...

Af hverju bjó hann þá Evu til handa Adam. Hefði ekki verið nær að búa til Evert?

21:43  
Anonymous Nafnlaus said...

já þú meinar...

nema hann sé transgender. heyrði fyrst talað um þessháttar í útvarpi núna í sumar og heyrðist lengi framan af vera rætt um tannskemmdir.
var ekki alveg að skilja samhengið, evrópsk samtök um tannskemmdir...

09:41  
Anonymous Nafnlaus said...

Samkvæmt nýjustu kvennaguðfræðirannsóknum var hún lespísk

20:03  

Skrifa ummæli

<< Home