15.1.08

að vaða villu og reyk



sitthvað er skemmtilegt og skrýtið þegar kemur að forsjárhyggju yfirvalda. reykingaherbergin eru eitt skemmtiatriðið.

vertinn á Barnum á Laugavegi 22 mun hafa innréttað sérstakt reykingaherbergi fyrir viðskiptavini í trássi við reglugerðir og nú ætlar Umhverfissvið Reykjavíkurborgar að taka á því máli af festu að eigin sögn. enda svosem ekki stætt á öðru en fylgja settum reglum.

aðaldjókið er samt að á því háa Alþingi mun enn vera í notkun sérstakt reykingaherbergi. þeas: löggjafinn kýs að setja okkur hinum reglur en fara ekki að þeim sjálfur.

heyrði eimnitt um helgina haft eftir þessum veitingamanni á Laugavegi 22 að meðan væru í notkun slík afdrep í Alþingishúsinu og í Leifsstöð myndi hann sjá sínum gestum fyrir aðstöðu til sömu hluta. gott hjá honum.

---

í framhaldi af þessu: hefur einhver heyrt Lýðheilsustöð leggja til bann við reykingum, notkun og sölu tóbaks, á Íslandi?
eða er sú stofnun (mönnuð tugum starfsmanna sem hafa það hlutverk að hafa vit fyrir okkur hinum) bara í því að segja okkur að drekka meira vatn?

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Já þetta er náttla bara hræsni.

Auðvitað eiga að vera reykherbergi sem víðast fyrir þessa vesalinga sem enn reykja. Heyrði af einhverjum töflum um daginn sem fá fólk til að hætta að reykja og virka víst svona fjandi vel. En kannski hafa þær einhverjar aukaverkanir einsog að hætta að hugsa í leiðinni.
Nei datt þetta svona í hug.
Kveðja frá ella sem kommentar í gegnum reykinn.

17:13  
Anonymous Nafnlaus said...

Ekki reyki ég nú Aðalsteinn minn, en er alveg sammála þér með hræsnina, tvískinnungsháttinn og frekjuna í sprelliköllunum á þinginu lága.
Hitt er annað mál að engum dáist ég meira að ég þeim knáu reykingarmönnum, sem láta sig hafa það að nopra í hvaða veðri sem er undir vegg og kveikja sér í rettu. Reykingamenn eru á Íslandi í dag hinir einu sönnu HRAUSTIRMENN.

09:45  

Skrifa ummæli

<< Home