17.8.06

...svona til að drepa timann

sælinú.

fyrir ykkur sem kannist við mig ætti ekki að koma á óvart að ég komi mér upp bloggi. er náttúrulega vegna þess að ég hef svo fáu öðru að sinna að ég verð að drepa tímann einhvern veginn – eða þannig.

langar til að prófa þetta og nú reynir á hvort kallinn hefur eitthvert úthald í að sinna þessu. er skemmtilegur miðill og hefur alltaf hentað mér betur að koma hlutum frá mér í rituðu máli en töluðu eins og þið vitið. nota tölvupóstinn frekar en símann sumsé.

sendi þannig póst um tilurð þessa miðils á lítinn hóp nánustu vina til að sjá hvort þetta virkar og hvort einhver nennir að lesa eða álykta á færslur. næstu daga ætla ég að reyna að koma með nokkrar færslur og kanna viðbrögðin. verði þau lítil verður eðlilega lítið úr þessu... og ekki mikið í húfi.

en væri gaman að heyra frá ykkur af og til.

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Heill og sæll vinur og velkominn í bloggheiminn. Það fer auðvitað algjörlega eftir því hversu bitastætt bloggið þitt verður hversu vel gengur að fá fólk til að lesa það og tjá sig. Ég hef fulla trú á að það reynist þér auðvelt enda góður penni og svo ertu svo andsk. íónískur og geðvondur.
Til hamingu.
kv elli

20:31  
Blogger POPULUS TREMULA said...

hehe og sæll sjálfur djöfull. jújú, kaupi þetta með kaldhæðnina; er aðalsmerkið. en geðvondur? jú þetta hjálpar mér til að auka það, virkar ekkert og tómt vesen. búinn að skrifa og týna brilliant greinum nú þegar... takk.

20:49  
Anonymous Nafnlaus said...

Frábært framtak ... hlakka til að lesa meira. Ekki verra ef ein og ein mynd slæðist með!

Kveðja,
Elín

21:56  
Blogger POPULUS TREMULA said...

takk Elín og gaman að sjá þig hér.

seinni myndin í kvöld verður úr Hómatungum eða nágrenni.

22:10  
Anonymous Nafnlaus said...

Ja þú hættir ekki að koma manni á óvart, orðinn bloggari heheh en til lukku með það og hlakka til að sjá meira. Kv systa

16:56  

Skrifa ummæli

<< Home